unglingar.jpg

fri_rik_lafsson_955055
Skákdagurinn er haldinn um allt land í dag, fimmtudaginn 26. janúar - í tilefni af afmælisdegi fyrsta stórmeistara Íslendinga Friðriks Ólafssonar. Taflfélög, skákklúbbar, grunnskólar, fyrirtæki, sundlaugar og fleiri sameinast um að það verði teflt sem víðast á Íslandi og sem flestir landsmenn á öllum aldri setjist að tafli. Í Salaskóla hafa nokkrar skákir verið tefldar í tilefni dagsins og í gangi er skákþraut sem allir geta tekið þátt í. Dregið verður  í  þrautasamkeppninni föstudaginn 3. febrúar. Um skákdaginn má lesa á www.skakdagurinn.blog.is

 

 

Sl. laugardag voru veitta viðurkenningar fyrir ljóð í ljóðasamkeppnin grunnskólanemenda í Kópavogi. Tíu ljóð eftir nemendur úr Salaskóla voru send í keppnina og hlaut Líney Ragna Ólafsdóttir í 10. bekk viðurkenningu fyrir ljóðið sitt Köld náttúra. Til hamingju Líney!

Þau heimsins fegurstu kristal korn
sem kastast af himni háum.
Þau ísköld eru og ævaforn
á Íslandi of við sjáum.

Þau safnast saman upp í fjöll
á Snæfells jöklatinda.
Allt landslag hverfur undir mjöll
og gerir alla blinda.

Á nóttum norðurljósanna
í nærsýni þær glitra.
Fegurð fer til frostrósanna
er þær fara að titra.

 

Meistaramot_2012__
Nú er lokið meistaramóti Salaskóla á yngsta stigi og hjá unglingum en það var haldið föstudaginn 20. janúar.. Meistaramót Salaskóla á miðstigi verður föstudaginn 27. janúar 2012.
Á meistaramóti unglinga sem var 20. janúar kepptu 20 krakkar en á meistaramóti yngsta stigs kepptu 44 krakkar.
Nánari úrslit unglinga.
Nánari úrslit yngsta stigs.

Myndir frá mótunum.

 

Skólahald er með eðlilegum hætti í dag í Salaskóla, þótt hann blási svolítið. Foreldrar meta sjálfir hvort þeir þurfi að fylgja börnum sínum í skólann, en það getur orðið býsna blint á milli. Foreldrar eru beðnir um að kynna sér eftirfarandi upplýsingar um viðbrögð við óveðri:

http://salaskoli.is/index.php?option=com_content&view=article&id=279&Itemid=191

 

 

Fundargerðir Skólaráðs Salaskóla eru á vefnum. Smellið á "Foreldrar" > "Skólaráð".

 

Foreldradagur er í Salaskóla í dag, 19. janúar, þá koma nemendur í skólann ásamt foreldrum sínum og hitta umsjónarkennarann sinn. Aðrir kennarar skólans s.s. sérgreinakennarar eru einnig til viðtals ef óskað er. Nemendur á mið- og unglingastigi fá skriflegan vitnisburð í hendur og fara yfir árangur sinn í viðtalinu en yngstu nemendurnir fá munlegan vitnisburð og setja sér markmið fyrir næstu önn í samráði við umsjónarkennara og foreldra.  

 

hilmir_freyr
10 krakkar úr Salaskóla kepptu á  Íslandsmóti barna nú um helgina. Hilmir Freyr Heimisson nemandi í 5 bekk náði öðru sæti, hann tapaði ekki einni skák en gerði tvö jafntefli við mjög sterka andstæðinga. Þeir Róbert Örn Vigfússon, Aron Ingi Woodard og Ágúst Unnar Kristinsson voru einnig í toppbaráttunni allan tíman og komust ásamt Hilmi í gegnum 15 manna úrtökuna.

Hér eru heildarúrrslitin.

Á myndinni eru Björn Ívar Karlsson, Hilmir Freyr og Stefán Bergsson.

 
Fréttaveita Salaskóla
Á næstunni
Skoða dagatal
TAPAÐ - FUNDIÐ:

TÝND LOPAPEYSA

Lopapeysa týndist, grá með „turtle neck“ kraga, merkt Freyr Ástmundsson í hálsmáli. Vinsamlegast hafið samband við skólann ef hún finnst.

 

66° ÚTIVISTARBUXUR
Tapast hafa svartar 66°N útivistarbuxur. Þær eru með flís að innan og erum merktar Tinna Guðrún. Vinsamlega hafið samband við ritara ef þær finnast.

 
TÝND LOPAPEYSA
Á dögunum týndist í skólanum ljósgrá lopapeysa með svörtu og hvítu mynstri í anda Farmers Market. Peysan er auðþekkjanleg fyrir eigandann því mynstrið er þannig samsett að sennilega er engin önnur peysa henni lík. Finnandi hafi vinsamlega samband við skólann.
 

GRÆN FLÍSPEYSA

Græn Breiðabliks flíspeysa merkt Hafþóri týndist á fjölgreindaleikunum. Finnandi vinsamlega hafi samband við skrifstofuna.

 

Viðburðadagatal
Janúar 2012
Su Mo Tu We Th Fr Sa
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31
Translator